
Brynja Hjálmsdóttir: „Innan skamms fer allt bara til andskotans“
Þegar Brynja Hjálmsdóttir rithöfundur ætlar að gera vel við sig verður hryllingur fyrir valinu. Nú hefur hún skrifað sína fyrstu hrollvekju, Undir fögru skinni, þar sem bústaðarferð vinahjóna breytist í útilegu í afskekktum dal. Erla Hlynsdóttir ræðir við Brynju um bókina, án þess að spilla neinu.
Brynja sækir grindina í slasher-formið. Í stað unglinga eru söguhetjurnar þó smáborgarar um fertugt sem virðast allir hafa eitthvað að fela.
Á kápunni er 18. aldar anatómíuteikning sem Brynja kallar anatómíska engilinn. Hún segir myndina svolítið óþægilega en líka svolítið sexí, rétt eins og bókina sjálfa.
Þráin er að mati Brynju mögulega stærsta þema bókarinnar. Hún telur líka þjóðsagnaarfinn hafa verið vannýttan í hryllingi.
Brynja hefur sent frá sér ljóðabækurnar Okfrumuna og Kona lítur við og skáldsöguna Friðsemd. Hún hefur meðal annars hlotið Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, Hvatningarverðlaun Vigdísar Finnbogadóttur og Ljóðstaf Jóns úr Vör.
Súrrealískur gamanleikur eftir Brynju fer á svið í Tjarnarbíói 7. janúar í leikstjórn Silju Hauksdóttur. Verkið gerist í flugvél á tímum heimsfaraldurs, en hún skrifaði það áður en Covid skall á.
Viðmælandi: Brynja Hjálmsdóttir
Umsjón: Erla Hlynsdóttir
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

