
38. Íslandsmet í maraþoni, brautarmet í Puffin, vonbrigði, pressa og næstu sigrar... á eigin forsendum! – Hlynur Andrésson
Sigurvegari Puffin Run og Íslandsmethafi í maraþoni kemur funheitur inn í stúdíóið og ræðir sigurinn í Puffin Run síðustu helgi.
Hlynur átti Íslandsmetin frá 3000m upp í maraþon árið 2021 en við ræðum erfiða tíma sem fylgdu árangrinum: 3x misheppnaðar tilraunir til að slá eigið Íslandsmet, næring á hlaupum, þjálffræðin sem hann aðhyllist, hvernig þjálfaraskipti og flutningar til Ítalíu sem fóru illa með hann, að missa áhugann á hlaupunum, finna ekki gleðina í íþróttinni lengur og upprisan úr þessu öllu saman!
Svo kemst enginn elítuhlaupari út úr stúdíóinu án þess að segja sína skoðun á sodium bicarbonate, hitaþjálfun, high-carb fueling, carbon skó, krossþjálfun og fleiri þætti sem eru að skila okkur nýrri gullöld af langhlaupum.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

